Hjálmar Gíslason - ráðstefnustjóri
GRID
Hjálmar Gíslason er frumkvöðull og gagnasérfræðingur með yfir 25 ára reynslu í hugbúnaðariðnaðinum. Hjálmar er stofnandi og framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtæksins GRID sem tengir saman heima töflureikna og gervigreindar. GRID er fimmta sprotafyrirtækið sem hann setur á fót, en hann hefur áður stofnað og tekið þátt í að byggja upp sprotafyrirtæki á sviði gagna, farsímalausna og tölvuleikja. Hjálmar hefur einnig verið virkur í sprotafjárfestingum sem meðeigandi í fjárfestingasjóðnum Investa.