Hlöðver Þór Árnason
APRÓ
Hlöðver Þór Árnason er framkvæmdastjóri APRÓ og býr yfir umfangsmikilli reynslu á sviði upplýsingatækni, frumkvöðlastarfsemi og stjórnunarstörfum. Hlöðver leiddi kaup á upplýsingatæknifélögunum Prógramm, Andes og Miracle fyrir hönd leitarsjóðsins Leitar Capital og sameinaði þau undir formerkjum APRÓ.
Í starfi sínu fer Hlöðver fyrir uppbyggingu á APRÓ sem lykilaðila á sviði nútímaupplýsingatækni á Íslandi. Megináhersla APRÓ eru sérsniðnar skýja- og gervigreindarlausnir án birgjalæsingar fyrir fyrirtæki og stofnanir.